Safahreinsun

MEIRI ORKA OG BETRI HEILSA MEÐ ÞRIGGJA DAGA SAFAHREINSUN PURE DELI

Safahreinsun í þrjá daga er góð leið til að byrja og koma sér af stað. Pure deli safahreinsunin byggist upp á grænmeti aðallega og er byggð upp á fimm söfum á dag í þrjá daga. Allir safarnir eru afhentir saman.
 
Við leggjum upp með að drekka fimm safa jafnt og þétt yfir daginn yfir þrjá daga. Mikilvægt er að drekka vel af vatni yfir daginn og við mælum með að fá sér létt salat í kvöldmat.

3 daga safahreinsun: Verð 14.990 kr. 

ÞAÐ ÞARF AÐ PANTA MEÐ MINNST 24 KLST FYRIVARA – SAFARNIR HAFA TAKMARKAÐAN GEYMSLUTÍMA ÞVÍ ER MIKILVÆGT AÐ SÆKJA Á RÉTTUM TÍMA

Athugið að safahreinsun þarf að panta með 24 klst fyrirvara. Einnig er hægt að kaupa safahreinsun fyrir einn dag og tvo daga.

Pure deli safarnir eru ótrúlega bragðgóðir og rauðrófu bragðið sem margir óttast er allt annað þegar safinn er kominn í bland við sítrónu og hinar afurðirnar.

Mikilvægt er að muna að safi er ekki sama og safi, uppistaðan í okkar söfum er grænmeti og allt handgert ferskt á staðnum en ekki innflutt vara sem hefur misst mikið af sínu næringargildi í því ferli.

Við mælum með fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða innihaldið og lesa sig til um hvað td rauðrófan og selleriið geriri fyrir okkur og taka ákvörðun útfrá því. Safarnir eru ekki hugsaðir sem töfralausn enda trúum við ekki á slíkt en þeir eru án efa gott innlegg í heilsuna og hjálpa til við að ná upp orku sérstaklega.

DAGUR 1

Rauðrófa, sellerí, gúrka, epli, sítróna, spínat, gulrót og tómatur.

Dagur 1 er góður hreinsunardagur og hér er rauðrófan uppistaðan með svo selleríinu, gúrkunni, sítrónunni, gulrótinni, eplinu og tómatnum. Rauðrófur hafa margvísleg góð áhrif á heilsuna eins og að hreinsa meltingarkerfið, ristilinn og blóðið.

Verð 5.490 kr. 

DAGUR 2

Spínat, engifer, epli, sítróna, steinselja, gúrka og sellerí.

Dagur 2 er græni dagurinn, orkumikill, mjög vatnslosandi dagur og losar um bólgur. Þessi safi er hollur og bragðgóður og þú finnur lítið fyrir svengd meðan þú ert að drekka þessa jafnt yfir daginn. Við mælum með að hafa vatn við höndina og drekka vel af því, þessi er mjög bragðgóður og ferskur

Verð 5.490 kr. 

DAGUR 3

Rauðrófa, sellerí, engifer, gulrót, spínat, sítróna og gúrka.

Dagur 3 er mjög góður hreinsunardagur og spilar rauðrófan lykilhlutverk hér einsog í degi 1. Í þessum er ekki epli og bara grænmeti en hann bragðast þó mjög vel og mörgum finnst þessi bragð bestur. Sellerí er í öllum dögunum og hefur sellerí ótrúlega mögnuð áhrif á heilsuna, það t.d hreinsar blóðrásina, aðstoðar meltinguna, slakar á taugum og gerir húðina fallegri.

Verð 5.490 kr.